bloggsíða namminamm

velkomin(n) á átakssíðuna mína

02.02.2007 16:43:26 / nammigrís

Viktun

Ég hef bara ekkert að segja nema það að ég fór í viktun á miðvikudaginn og var búin að léttast um1,1kg þannig að það eru farin 12,4kg í heildina en ég hef kannski meira að segja seinna bæjó.


» 5 hafa sagt sína skoðun

25.01.2007 21:54:12 / nammigrís

Þetta mjakast

Sælir

Vikan gekk nú ekki alveg eins og ég hefði óskað en ég fór í viktun í gær og það voru farin 300gr en allt sem er ekki upp á við kalla ég bara nokkuð gott er það ekki annars?

Jæja ég fór og fjárfesti í nýju vikunni til að fá nýju uppskriftarbókina og er margt mjög girnilegt í henni, maður verður nú að fara prufa sig áfram í þessum uppskriftum maður er alltaf bara í því sama.

Mamma og vinkona hennar fóru á sinn fyrsta fund á þriðjudaginn og er ég ekkert smá lukkuleg með það að vera ekki alltaf ein að ströglast í þessu ekki það að maðurinn minn er búin að vera roslega duglegur að hjálpa mér og er hann búin að missa þó nokkur kíló líka þó svo að hann sé ekki að fylgja DDV nema bara á kvöldin og um helgar en ég segji það ekki að hann hugsar nú held ég meira um þetta í vinnuni heldur en hann gerði áður, ég gæti þetta ekki nema útaf því að hann fylgir mér.

En annar hefur nú bara lítið verið um að vera hjá mér í vikunni þannig að ég kveð nú bara í bili.


» 3 hafa sagt sína skoðun

18.01.2007 19:10:43 / nammigrís

Halló halló

Jæja jæja nú gengur ekki lengur þessi leti við að blogga.

Allavegana þá fór ég í viktun í síðustu viku þá fyrstu eftir hátíðirnar og var ég búin að þyngjast um 700 gr :(og þar sem ég var komin niður um 10,5 kg fyrir jólin þá var ég aftur komin í 9,8 kg og búin að glata tíunni minni en sem betur fer var ég þokkalega dulega að koma mér í DDV gírinn aftur og fór í viktun aftur í gær og var búin að koma mér aftur niður og aðeins betur því ég var komin niður um slétt 11 kg :lol:og var bara mjög ánægð með það, og svo þýðir ekkert annað en að halda bara ótrauð áfram til að ná sínum markmiðum.

Annars er bara allt rosalega gott að frétta af mér og það er alveg ótrúlegt hvað það er gaman að heyra fólk segja að það sjái nú orðið ótrúlegan mun á mér þetta er eins og vítamínsprauta í rassin hjálpar manni alveg rosalega.

Takk allar fyrir kommentin þau eru ómetanleg.


» 4 hafa sagt sína skoðun

07.01.2007 16:51:04 / nammigrís

Jólin kvödd

Gleðilegt ár öll sömul

Jæja þá er maður komin heim á klakann aftur og daglegt líf að fara taka við aftur.

Ég var nú alls ekki nógu dugleg yfir hátíðirnar ég hreinlega borðaði bara allt sem mig langaði í enda er ég komin með gjörsamlega ógeð af öllu sem kallast sukk, það er búið að ganga alveg ljómandi vel að koma mér aftur yfir á DDV en ég er kannski ekki að ná að klára alla skammtana en þetta er allt á réttri leið.

Ég er ekki búin að fara í viktun á nýju ári en ég veit það svona miðað við mína vikt þá fæ ég alveg að finna fyrir því að hafa svindlað svona mikið þar sem hún er ca. 1,5kg upp á við:( en ég vona bara að það fari fljótt, ég hef fulla trú á að þetta komi strax og maður er komin í sína réttu rútínu farin að vinna og aðeins að hreyfa sig. Ég veit ég get þetta því ég ætla, Heyri í ykkur aftur seinna reyni að komast bloggrúnt á eftir eða fljótlega gangi ykkur öllum sem best.


» 4 hafa sagt sína skoðun

16.12.2006 14:34:40 / nammigrís

Ég er á lífi

Bara svo ég láti nú vita af mér þá er ég enn á fullu og er komin í 9,7 kg það er bara svo mikið að gera hjá manni þessa dagana þannig að ég er nú ekki svo mikið í tölvunni ég læt svo bara heyra í mér eftir jóli þar sem ég er að fara til útlanda og verð þar fram á nýtt ár. Vonandi gengur manni bara vel yfir hátíðirnar.

Ég segji svo bara gleðileg jól og gangi ykkur öllum vel yfir jól og áramót heyrumst svo bara á nýju ári.


» 2 hafa sagt sína skoðun

29.11.2006 08:28:54 / nammigrís

Sjötta vikan

Æii ég gleymdi að setja inn síðustu viktun enda var ég nú ekkert rosalega ánægð með útkomuna en allavegana þá fóru 900gr á tveim vikum en ég var nú svosem á jólahlaðboði, en er að fara aftur í viktun í dag og vona bara það besta, læt heyra í mér í kvöld eða morgun til að leyfa ykkur að vita hvernig gekk.

» 2 hafa sagt sína skoðun

16.11.2006 08:40:16 / nammigrís

Kemst ekki í viktun

Ohh ég er svo svekt ég kemst nefnilega ekki í viktun og á fund þessa viku:(, það er svona þegar það er mikið að gera, en þá verður maður bara að vera en duglegri.

En svo er eitt ég er að fara á jólahlaðborð um helgina og veit ekki alveg hvernig ég á að höndla það, ég verð bara að vera búin að borða grænmetið mitt áður en ég fer svo ég verði ekki mjög svöng og freistist í eitthvað gúmmelaði en vonandi gengur þetta bara vel. En svo er það líka annað að þetta er ekki eina hlaðborðið sem ég er að fara á heldur er ég að fara á tvö í viðbót, einhverntíman hefði manni nú fundist þetta mjög fínt en núna finnst mér þetta ekki nógu gott en maður verður nú bara að sýna hvað maður er sterkur þar sem maður vill ekki heldur sleppa þessu svo maður sé nú ekki félagsskítur. Ef einhver er með einhver góð ráð fyrir mig þá eru þau vel þegin.


» 5 hafa sagt sína skoðun

09.11.2006 10:53:06 / nammigrís

Fjórða viktun og 5,9 kg farin

Váááá hvað ég er ánægð núna ég fór nefnilega í viktun og það voru aftur farin 1,7 kg :lol: og ég var ekkert smá lukkuleg þar sem ég er komin yfir 5 kg múrinn og gott betur ég er nefnilega komin 5,9 kg niður :haha: og eru þessi kg kvödd að eilífu og geri ég það með glöðu geði.

Núna veltir maður því fyrir sér afhverju byrjaði ég ekki fyrr, ég bara hélt að þetta væri svo mikið vesen að vikta allt saman en ég er nú búin að komast að öðru þetta er bara ekkert mál ef maður ætlar sér þetta, og þess vegna skora ég á alla þá sem eru að spá í að byrja að mæta bara á næsta fund, maður fær mjög góðan stuðning þarna og ég tala nú ekki um að blogga líka það gefur manni ótrúlegan kraft, því ef ég get þetta þá hugsa ég að allir geti þetta þar sem ég var rosalegur nammigrís en hef ekki smakkað nammi núna í 5 vikur og hef ekki einu sinni löngunina sem kemur mér eiginlega mest á óvart.

Mig langar til að spyja ykkur í sambandi við lifrina, afhverju það er nauðsynlegt að borða hana einu sinni í viku? Ég er nefnilega ekkert sérlega hrifin að henni:S og er bara búin að borða hana einu sinni á þessum 4 vikum, var reyndar að heyra að lifrin á Nings væri mjög góð, ég verð að fara prufa hana.

En jæja ætli ég verði ekki að fara snúa mér að einhverju öðru núna heimilisverkin bíða víst en bið að heilsa í bili.


» 4 hafa sagt sína skoðun

02.11.2006 09:46:33 / nammigrís

Þriðja viktun

Sæl öll sömul.

Þá er þriðja viktunin búin og viti menn það voru farin 1,7 kg þessa viku og eru þá samtals 4,2 kg farin að eilífu:lol:, það er ótrúlega gaman að sjá þegar viktin sígur svona niður.

Ég er meira að segja farin að finna aðeins mun á fötunum mínum, að þau eru ekki eins klest við mig eins og vanalega og svo eru tveir búnir að spyrja mig hvort ég sé í átaki þar sem það sjái nú smá mun á mér:D:D, það er nú bara gaman að heyra svona þar sem að maður átti nú ekki von á því að fólk myndi taka eftir því stax.

En annars gengur bara ágætlega að borða eftir þessu en það koma reyndar alltaf dagar þar sem ég er ekki að klára allt saman en ég er samt að reyna leggja mig fram við að muna eftir öllu, það er bara þannig að þegar maður er kannski að fylla matardagbókina á kvöldin þá uppgvötar maður kannski að eitthvað er eftir og hefur kannski enga list en ég er að reyna venja mig á að fylla hana bara út jafn óðum og kíkja á hana áður en ég borða kvöldmat svo ég geti sett það sem vantar inn í kvöldmatinn en það hefur ekki alltaf tekist:$.

Takk fyrir öll góð ráð og peppið það hjálpar mikið. Gangi ykkur öllum sem best.


» 6 hafa sagt sína skoðun

26.10.2006 18:38:32 / nammigrís

Önnur viktun

Halló halló hvað segji þið þá.

Mig langar bara að þakka ykkur kærlega fyrir öll kommentin hérna þau er alveg ómetanleg.

En allavegana þá skundaði ég í viktun og á fund og viti menn það var farið eitt kíló þrátt fyrir nokkur matarboð í vikunni sem leið og var ég bara rosalega sátt við það þar sem ég náði ekki að fara alveg 100% eftir DDV. Ég er enn að furða mig á því hvað það hefur gengið vel að hætta að borða þetta blessaða sælgæti það hefur bara ekki komið smá löngun einu sinni:lol: var reyndar að prufa að búa til eitthvað DDVgotterí en það var svona aðalega fyrir kallinni,langaði að vita hvort þetta væri gott og var þetta alveg mesta furða. En núna ætla ég að fara elda mér eitthvað gott bless í bili


» 6 hafa sagt sína skoðun

23.10.2006 08:53:45 / nammigrís

Hvar fæ ég salmiak?

Sælar stelpur.

Mig langar að spyrja ykkur hvar maður getur keypt salmiak, er búin að komast að því að anisdroparnir fást á fundunum en gat ekki fundið hitt. Ég var nefnilega að skoða uppskriftir hér á netinu og rakst á Bingó kúlur og langaði að prufa en mig vantaði þetta í uppskriftina og langar endilega að vita hvar ég get nálgast þetta.

Ég hef nefnileg mikið verið að skoða uppskriftir til að fá hugmyndir að einhverju að elda svo að maturinn verði ekki einhæfur, keypti mér einmitt nýju vikuna til að fá uppskriftarblaðið og það er fullt að girnilegu í því og er meira að segja búin að prufa tvo rétti og voru þeir mjög góðir, gerði þá reyndar ekki  alveg eftir bókinni en það er um að gera að breyta aðeins. En annars segji ég bara bless í bili og læt svo heyra í mér eftir næstu viktun.


» 4 hafa sagt sína skoðun

19.10.2006 08:39:56 / nammigrís

Fyrsta viktun

Jæja þá er fyrsta viktunin búin og var ég bara nokkuð sátt, -1,5 kg.

Ég hef samt kannski ekki farið 100% eftir DDV en örugglega samt 90%, ég er nefnilega ekki að borða held ég alveg allt, td. eins og mjólkurskammturinn, mér finnst svolítið erfitt að skipta á milli tegunda og vita hvað á að vera mikið af hverju td. ef mig langaði að búa mér til smá sósu úr sýrðum rjóma nota kannski bara 2-3 tsk hvað er það mikið í dl en þetta á sennilega eftir að lærars, ég held að mér finndist best að hafa þetta bara í grömmum maður er orðin svo háður vigtinni eða kannski á maður bara eftir að læra þetta í dl. Þið megið endilega láta mig vita ef þið hafið einhverja góða reglu við að skipta þessum skömmtum.;)

En annars gengur bara vel að borða eftir þessu, ég finn aldrei fyrir svengd þar sem mér finnst ég alltaf vera að borða og meira að segja uppgvöta ég það oft að ég á eftir ávöxt eða mjólkurvöru og stundum fitu þegar ég er að fara sofa, á maður ekki að borða það þó svo að maður sé kannski að fara í háttin? og hvað á maður að fá sér ef maður uppgvötar að maður á eftir að fá fitu ekki fer ég að fá mér 1 tsk af léttu eða olíu eða hvað?:$

Það sem hefur komið mér mest á óvart með sjálfa mig er að ég hef ekki fengið neina löngun í nammi og gos þar sem ég er agalegur nammigrís og ég drakk gos oft í viku, þá hélt ég að þetta yrði rosalega erfitt að sleppa þessu en það eru bráðum 3 vikur síðan ég borðaði nammi og drakk gos, ég er bara rosalega stolt af sjálfri mér:haha:, (ég veit reyndar að það má drekka 1/2 L af sykurlausu gosi á dag en ég ætla að reyna sleppa því, en ef það kemur mikil löngun í gos þá ætla ég að leyfa mér það, en meðan löngunin er ekki til staðar þá ætla ég bara að sleppa því, sódavatn kemur alveg í staðin).

Jæja ætli ég láti þetta ekki gott heita í bili kveðja nammi namm.


» 8 hafa sagt sína skoðun

12.10.2006 10:23:52 / nammigrís

Byrjuð í DDV

Jæja loksin loksins það er nú eða aldrei ég er hreinlega að drukkna í spiki núna. Ég er búin að skrá mig í DDV og mér lýst bara svona þokkalega vel á þetta þó svo að það sé nú ekki komin mikil reynsla á þetta hjá mér, því ég byrjaði bara núna í vikunni, þá held ég að þetta mataræði eigi eftir að virka fyrir mig, maður er gjörsamlega alltaf borðandi og ef eitthvað er þá á maður frekar erfitt með að klára það sem maður á að borða. Ég hef verið að skoða síðurnar hjá öllu þessu duglega fólki sem er á DDV og öfundast út í hvað því gengur vel en það þýðir nú bara ekkert maður verður bara að gera eitthvað í þessu sjálfur og prufa sömu leið og vonandi virkar hún eins vel á mig og aðra:lol:. Ég hef sett mér það takmark að blogga allavegana einu sinni í viku og þá eftir viktun til að setja inn nýjar tölur sem vonandi fara niður á við, en það er aldrei að vita að maður skelli inn línum inn á milli ef eitthvað liggur manni á hjarta, ég er nefnilega ekkert svo mikill bloggari en ég er samt nokkuð viss um að þetta hjálpar og vonandi fær maður smá spark í rassin hérna. Jæja ætli það sé ekki best að uppljóstra um leyndarmálið en það er auðvitað blessuð viktin, hún var nú ekkert sérlega góð við mig (eða réttara sagt hef ég ekki verið neitt sérlega góð við sjálfa mig að leyfa henni að rjúka svona upp) en nú verður breyting á. ÉG GET, ÉG VIL, ÉG ÆTLA. Fyrsta viktun hjá á DDV fundinum var, og haldiði ykkur nú fast.......117,3 kg og þar sem ég er c.a.167 cm langar mig að komast niður í 70-75 kg svona til að byrja með en ég geri mér nú alveg grein fyrir því að þetta tekur sinn tíma og það er bara að halda það út. Jæja ætli þetta sé ekki að verða gott í bili og hafiði það sem allra best svo læt ég heyra í mér í næsu viku en þangað til þá bara bæjó. Kveðja nammi-namm.

» 8 hafa sagt sína skoðun